Frelsi og fullveldi

Upptaka/Hlaðvarp: Málfundafélagið Frelsi og fullveldi boðaði til opins umræðufundar á Catalínu í Hamraborg Kópavogi, mánudagskvöldið 18. mars síðasliðinn en þetta var áttundi opni fundur félagsins frá stofnun þess sl. vor. Fundarefnið var Varðstaða um íslensk gildi. Framsögumenn voru þeir Stefán Einar Stefánsson blaðamaður og Birgir Þórarinsson alþingismaður. Fundarstjóri var Anna Björg Hjartardóttir.

Á fundinum var ályktun um aðgerðir til að tryggja varðstöðu um íslensk gildi borin upp og samþykkt með margföldu lófataki.

Til upplýsingar: Eftir að spilarinn hefur verið settur í gang er nóg að ýta á tímalínu viðkomandi ræðumanns hér að neðan og þá hrekkur spilarinn þangað. Einnig má byrja á að velja tímalínu ræðumanns og ýta síðan á spilarann.

Tímalínur ræðumanna:

0:00:00  Geir Waage, formaður málfundafélagsins
0:03:10   Anna Björg Hjartardóttir, fundarstjóri
0:04:41   Birgir Þórarinsson, framsögumaður
0:24:10   Stefán Einar Stefánsson, framsögumaður
0:47:02   Ólafur Ísleifsson les tillögu að ályktun
0:53:50   Ásta Óla Halldórsdóttir
1:01:25    Óttar Óttarsson
1:05:38   Edith Alvarsdóttir
1:08:32   Halldór Gunnarsson
1:13:50    Arndís Ósk Hauksdóttir
1:22:36   Halldór Gísli Sigurþórsson
1:27:16    Geir Waage
1:40:24   Unnur Eggertsdóttir
1:48:21    Anna Björg ber upp ályktunina sem lá fyrir
1:49:25   Birgir Þórarinsson, framsögumaður
1:53:27   Stefán Einar Stefánsson, framsögumaður
2:00:34  Geir Waage, formaður slítur fundi

What is Frelsi og fullveldi?

HVAÐ ER FRELSI OG FULLVELDI?

Málfundafélagið Frelsi og fullveldi var stofnað 30. mars 2023 til að standa vörð um frelsi einstaklingsins, fullveldi þjóðarinnar og óskoruð yfirráð þjóðarinnar yfir auðlindum sínum til lands og sjávar.

Heimilin og fyrirtækin eru hornsteinar samfélagsins. Heimilin eru friðheilagur griðastaður fjölskyldunnar. Fólki er frjálst að stofna og reka atvinnufyrirtæki sem keppa hvert við annað um að veita sem besta þjónustu. Við viljum standa vörð um atvinnustarfsemina í landinu og þar á meðal okkar grundvallaratvinnuvegi til lands og sjávar.

Félagið leggur höfuðáherslu á að skólar og sjúkrastofnanir séu fyrsta flokks. Engin þjóð sem er annt um fullveldi sitt lætur landamæri sín standa opin. Við viljum hafa fulla stjórn á landamærum okkar og láta af þeirri gengdarlausu fjársóun sem fylgt hefur þessum málaflokki.

Ísland er lýðræðisríki og réttarríki með áherslu á mannréttindi, mannhelgi og virðingu fyrir lífinu. Ísland er menningarríki og velferðarríki sem stendur vörð um hag þeirra sem standa höllum fæti. Ísland á í góðum samskiptum við umheiminn og við stöndum fast að baki því að eiga í góðu alþjóðlegu samstarfi með áherslu á Sameinuðu þjóðirnar, Atlantshafsbandalagið og norræna samvinnu auk samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem tryggir frjáls viðskipti við Evrópuríkin.

Við stjórn efnahagsmála leggur Frelsi og fullveldi áherslu á ábyrga stefnu í ríkisfjármálum og peningamálum, takmörkuð umsvif hins opinbera og lækkun skatta og álaga.

Þetta eru höfuðatriðin í stefnu félagsins.