Útvarp Bændablaðið

Rætt er við tvo unga bændur sem hafa verið í uppbyggingu í sinni búgrein og að vissu leyti farið sínar eigin leiðir, Höllu Sif Svansdóttur Hölludóttur, garðyrkjubónda og eiganda Sólskins grænmeti, og Stefán Braga Birgisson, sauðfjárbónda á Galtastöðum Ytri í Hróarstungu á Austurlandi. 

What is Útvarp Bændablaðið?

Hér ætlum við að halda úti upplýstri og spennandi umræðu um landbúnað. Nýr þáttur aðra hverja viku, þá viku sem Bændablaðið kemur ekki út, þar sem víða verður komið við í spjalli við bændur og sérfræðinga, stjórnmálafólk, neytendur og ýmsa aðra sem hafa innsýn í íslenskan landbúnað.