Skátakortérið

Við tókum fyrir þriðju grein skátalaganna og veltum fyrir okkur hvað það þýðir að vera traustur, á meðan við keyrðum heim eftir að plönin okkar fóru aðeins út af sporinu.
Við treystum veðurspánni (sem var djörf ákvörðun), eigin skipulagshæfni (enn djarfari) og hvor annarri (dirfska fer eftir koffínmagni).
Kannski er traust stundum þrjóska í sparibúningi?

What is Skátakortérið?

Hlaðvarp um skátastarf í allri sinni mynd. Gleðina, áskoranirnar og það sem situr eftir langt eftir að búið er að taka niður tjöldin. Við segjum sögur, deilum reynslu og ræðum vináttu, gildi og hvað það þýðir að tilheyra stærri heild. Fyrir öll sem vilja skilja hvað skátastarf er í raun og hvers vegna það mótar fólk til framtíðar.