FIDE-meistarinn Þorsteinn Þorsteinsson, ritstjóri Hagstofu Íslands og fv. markaðsstjóri RÚV er gestur Kristjáns Arnar. Þeir ræða Heimsmeistaramót öldungasveita sem fram fór í Durres í Albaníu í lok apríl en íslenska sveitin í flokki 65+ tryggði sér bronsið eftir spennandi lokaviðureignir í síðustu umferðunum. Aldeilis frábær árangur hjá íslensku sveitinni! Liðið var skipað þeim Helga Ólafssyni, Margeiri Péturssyni, Jóni L. Árnasyni, Þorsteini Þorsteinssyni og Áskeli Erni Kárasyni. Þorsteinn talaði um að það mætti gera meira fyrir "öldungaskák" á Íslandi og sagði að íslenskir skáköldungar væru einu skákmennirnir hér á landi sem ættu raunhæfa möguleika á að berjast um verðlaunapeninga á EM og HM. Hann sagði að Skáksamband Íslands þyrfti að leggja meiri áherslu og rækt við þennan aldurshóp. Þeir Kristján og Þorsteinn ræða tillögur sínar til breytinga á skáklögum SÍ sem lagðar verða fram á næsta aðalfundi SÍ í lok mánaðarins, 100 ára afmælishátíð Taflfélags Vestmannaeyja í lok sumars og margt fleira.
What is Við skákborðið?
Vikulegir þættir um skák á innlendum og erlendum vettvangi í umsjón Kristjáns Arnar Elíassonar alþjóðlegs skákdómara.