Jólaþátturinn

Hera Björk Þórhallsdóttir söngkona og platan Ilmur af jólum, Hera kynnir tónleika sem hún mun halda í Salnum í Kópavogi 14. desember n.k. ásamt hljómsveit Björns Thoroddsen - Gömlu góðu jólaperlurnar heita tónleikarnir - Opinn sími og fólk fær miða á tónleikana.
Doktor Bruni - Jón Pétursson slökkviliðsmaður - ræðir um eldhættu um jól og áramót - Gefur hlustendum reykskynjara frá Öryggismiðstöðinni.
Sandra Clausen rithöfundur segir frá bókum sínum og gefur hlustendum - opnum símann og gefum bækur.
Guðrún Guðlaugsdóttir rithöfundur og blaðamaður. Rætt um nýja bók hennar sem heitir "Dóu þá ekki blómin" og síðan um blaðamennsku - breytingar fyrr og nú- falsfréttir - opnum síma og gefum bækur.  -- 4. des. 2025


What is Jólaþátturinn?

Jólaglens og gleði á Útvarpi Sögu