Hagfræði leikskólanna – er það til? Já, leikskólar eru ein af grunnstoðum samfélagsins og þeir eru þjóðhagslega hagkvæmir. Í nýjasta hlaðvarpsþætti VR, H fyrir hagfræði eru því leikskólarnir aðalumræðuefnið. Í þættinum ræða Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, og Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóri Vísbendingar, saman um efnahagsmál, á mannamáli. Gestur þáttarins að þessu sinni er Henný Hinz, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ, sem fjallar um leikskólana út frá hagfræðinni – en með mýkt og mildi að leiðarljósi.
What is VR hlaðvarpið?
Hlaðvarp VR stéttarfélags um réttindi, vinnumarkaðinn og málefni sem snertir félagsfólk og samfélagið allt.