Að þessu sinni settist Við skákborðið hjá Kristjáni Erni Elíassyni Helgi Árnason formaður skákdeildar Fjölnis og fyrrverandi skólastjóri Rimaskóla. Helgi segir að hann hafi fyrst og fremst tengst skákinni í gegnum skólastarf og þá mest eftir að hann tók við starfi skólastjóra við Rimaskóla sem hann gengdi í 26 ár en skólinn var stofnaður árið 1993. Á tíu ára afmæli skólans árið 2003 urðu skáksveitir skólans Íslandsmeistarar bæði í stúlknaflokki og opnum flokki en Helgi segir að skólinn hafi verið með skákstarf frá upphafi og þá aðallega í gegnum tómstundastarf hjá Íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur (ÍTR). Afraksturinn kom því fljótlega í ljós en á fyrsta borði tefldi Hjörvar Steinn Grétarsson, nú stigahæsti skákmaður landsins, þá aðeins 9 ára gamall. Sigurbjörn Björnsson FIDE meistari og liðsmaður skáksveitar Fjölnis í efstu deild á Íslandsmóti skákfélaga kom svo símleiðis inn í miðjan þáttinn og ræddi við þá Helga og Kristján Örn. Umræðuefnið var meða annars fjölmennt, skemmtilegt og sterkt tveggja daga atskákmót taflfélaga sem lauk í Taflfélagi Reykjavíkur í gærkvöldi með sigri Víkingaklúbbsins og Íslandsmót skákfélaga en skáksveit Fjölnis trjónir þar nú eitt liða á toppnum með fullt hús stiga eftir að fyrri hluta keppninnar hefur farið fram. Ljóst er að baráttan um Íslandsmeistaratitilinn verður á milli skákdeildar Fjölnis, Taflfélags Reykjavíur og Víkingaklúbbsins en síðari hluti keppninnar verður tefldur dagana 29. febrúar til 3. mars á næsta ári.
What is Við skákborðið?
Vikulegir þættir um skák á innlendum og erlendum vettvangi í umsjón Kristjáns Arnar Elíassonar alþjóðlegs skákdómara.