Heimsendir

Sumarið 2026 fórum við fjölskyldan í pílagrímsferð til Alsír. Mikið ævintýri, skert þarmaflóra, ónýtir bílar sem keyra um á ljóshraða. Í þessum þætti segi ég ykkur frá ferðinni, uppákomum og vandræðum, sem og menningarsjokki og góðu skapi margra heimamanna.

Njótið vel! Fleiri ferðasögur á leiðinni <3

What is Heimsendir?

Heimsendir eru þættir sem fjalla um Japan, japanska sögu og menningu. Þáttastjórnandinn Stefán Þór býr ásamt fjölskyldu sinni í Japan og segir okkur frá lífinu þar - hvernig það er að vera leikari í Japan, hvaða tækifæri eru að finna og hvaða áskorunum fólk þarf að mæta í landi hinnar rísandi sólar.

Heimsendir byrjaði sem umræðuþáttur um mismunandi sviðsmyndir heimsenda - allt frá gervigreind til uppvakninga, líftækni til heimsstyrjaldar. Nú þegar Stefán Þór er búsettur í Japan er fókusinn færður þangað en inn á milli má finna heimsendatengt efni á borð við uppgang gervigreindar, geópólitík Austur Asíu, Kína, Rússland og fleira.

Upphafs- og endastef: Ísidór Jökull Bjarnason.
Artwork: Sherine Otomo