Heimsendir

Ég, CEO of Heimsendir, er mættur aftur til Tokyo. Í þessum þætti fjalla ég um ferðalagið langa, sjúkdóminn Restless legs syndrome (AKA. Willis-Ekbom Disease), jet-lag, COVID í Japan, kurteisi og þjónustulund, japönsk onsen-böð og fleira og fleira! 

Takk fyrir að hlusta og ef þér hafið lausa stund þá bið ég yður um að gefa Heimsendi einkunn og skrifa umsögn á Spotify eða Apple Podcasts. Þakka yður, og vér heyrumst í næsta þætti!

What is Heimsendir?

Heimsendir eru þættir sem fjalla um Japan, japanska sögu og menningu. Þáttastjórnandinn Stefán Þór býr ásamt fjölskyldu sinni í Japan og segir okkur frá lífinu þar - hvernig það er að vera leikari í Japan, hvaða tækifæri eru að finna og hvaða áskorunum fólk þarf að mæta í landi hinnar rísandi sólar.

Heimsendir byrjaði sem umræðuþáttur um mismunandi sviðsmyndir heimsenda - allt frá gervigreind til uppvakninga, líftækni til heimsstyrjaldar. Nú þegar Stefán Þór er búsettur í Japan er fókusinn færður þangað en inn á milli má finna heimsendatengt efni á borð við uppgang gervigreindar, geópólitík Austur Asíu, Kína, Rússland og fleira.

Upphafs- og endastef: Ísidór Jökull Bjarnason.
Artwork: Sherine Otomo