Heimsendir

Árið 1998 átti sér stað skrýtinn atburður í Wakayama héraði í suðvestur Japan. Fólk lést eftir að hafa borðað karrírétt með hrísgrjónum en enginn vissi hvað hafði gerst fyrr en rannsókn á málinu leyddi ýmislegt í ljós. Í þessum þætti fjalla ég um karrímorðin í Wakayama og fólkið á bakvið þann myrka atburð. 

Kæri hlustandi, þessi þáttur er í opinni dagskrá en ég minni á Patreon appið fyrir þau ykkar sem viljið fullan aðgang að öllum þáttum sem og að styðja við bakið á þessu hlaðvarpi. Takk fyrir að hlusta!

What is Heimsendir?

Heimsendir eru þættir sem fjalla um Japan, japanska sögu og menningu. Þáttastjórnandinn Stefán Þór býr ásamt fjölskyldu sinni í Japan og segir okkur frá lífinu þar - hvernig það er að vera leikari í Japan, hvaða tækifæri eru að finna og hvaða áskorunum fólk þarf að mæta í landi hinnar rísandi sólar.

Heimsendir byrjaði sem umræðuþáttur um mismunandi sviðsmyndir heimsenda - allt frá gervigreind til uppvakninga, líftækni til heimsstyrjaldar. Nú þegar Stefán Þór er búsettur í Japan er fókusinn færður þangað en inn á milli má finna heimsendatengt efni á borð við uppgang gervigreindar, geópólitík Austur Asíu, Kína, Rússland og fleira.

Upphafs- og endastef: Ísidór Jökull Bjarnason.
Artwork: Sherine Otomo