Gímaldið

Margt kemur Gísla Marteini Baldurssyni spánskt fyrir sjónir í umræðu flokkanna um skipulagsmál í Reykjavík.  Í þættinum Börn og Bílastæði er rætt við Gísla Martein um Reykjavík í samanburði við aðrar borgir og þau öngstræti sem umræðan um skipulagsmál er komin í í aðdraganda kosninga.
  • Er raunhæft að bera Reykjavík saman við aðrar borgir? 
  • Hvernig væri Reykjavík ef þéttingin væri eins og í París?
  • Af hverju töldu Barselónabúar að þar væri ekki hægt að hjóla?
  • Stærð borga máli og almenningssamgöngur
  • Mikilvægi þéttingar byggðar og óreiðan í umræðunni
  • Fara mislæg gatnamót og blómleg hverfi saman?
Umsjónarmaður þáttarins er Aðalheiður Ámundadóttir.
Á Gímaldinu má lesa útdrátt úr hlaðvarpsviðtalinu.

Börn og bílastæði eru kosningaþættir Gímaldsins þar sem áhersla er lögð á að greina málefni frekar en að fjölga upphrópunum í umræðunni. Þættirnir eru öllum opnir en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

What is Gímaldið?

Hlaðvarpsþjónusta Gímaldsins 🧡