Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri grænna, ætlar að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst, þótt flokkurinn sé formlega andvígur aðild að Evrópusambandinu. Samkvæmt könnunum ætlar yfirgnæfandi meirihluti kjósenda flokksins að segja já í atkvæðagreiðslunni. Rósa Björk segir forystu flokksins verða að leggja við hlustir og bregðast við viðhorfsbreytingunni í flokknum.
Aðalheiður Ámundadóttir ræðir við Rósu Björk um Evrópumálin, landsmálin, ríkisstjórnina, NATO, móralinn í flokknum og framtíðina.
Meðal þess sem kemur fram í þættinum:
- Formaðurinn vill halda dyrum opnum en ekki lokuðum.
- Forystan þurfi að leggja við hlustir þegar rúm 93% kjósenda VG ætla að segja já samkvæmt nýrri könnun og um 65% eru hlynnt aðild.
- Nokkrar kanónur í flokknum eru búnar að lýsa afstöðu sinni opinberlega. Svandís Svavarsdóttir fyrrverandi formaður ætlar að segja nei í ágúst, Stefán Pálsson starfar með Áfram Ísland og ungliðahreyfing flokksins starfar með ungum Sjálfstæðis- og Miðflokksmönnum í baráttu fyrir NEI.
- Formaðurinn segir fjölbreyttar skoðanir endurspegla lýðræðislegan styrk hreyfingarinnar.
- Lífskjör og staða alþjóðamála eigi stærstan þátt í viðhorfsbreytingu til ESB.
- Áherslur VG þurfi að heyrast við samningaborðið verði viðræðum haldið áfram: náttúruvernd, auðlindir, hagsmunir bænda, sjávarútvegsmál, réttindi vinnandi fólks og viðbrögð við tækninýjungum.
- Ríkisstjórnin hafi ekki haldið vel á málinu og Samfylkingin verið fjarverandi í kosningabaráttunni.
- Ríkisstjórnin gagnrýnd fyrir virkjanablæti, aukið atvinnuleysi, lakan árangur í efnahagsmálum og fyrir að bregðast ekki nógu kröftuglega við útlendingaandúð.
- NATO er að veikjast og ný bandalög gætu orðið til.
- Vinstri græn hafa rætt mikið um fortíðina og átt í uppgjöri. Nú vill formaðurinn snúa sér og flokknum að framtíðinni.
What is Gímaldið?
Hlaðvarp Gímaldsins 🧡 Gímaldið er fréttatengdur fjölmiðill í áskrift. Við birtum greiningar og fréttaskýringar og gefum út þætti um samfélag, stjórnmál og menningu. Vertu með okkur í að lýsa upp samfélagið. Þú getur gerst áskrifandi hér: https://gimaldid.is/askrift/