Heimsendir

Þátturinn er aðgengilegur í fullri lengd inná:  https://www.patreon.com/heimsendir

Súmóglíma er þjóðaríþrótt Japans og keppendur eru RISASTÓRIR. Í þessum þætti fjalla ég líka um geðræna fyrirbærið hikikomori eða komoribito og einmanaleika í útlöndum. Komdu á Patreon og njóttu þar! Það kostar gott sem ekki neitt og þar hefurðu fullan aðgang að öllum þáttum Heimsendis. Á Patreon eru mismunandi þrep en áskriftir byrja í litlum $5 á mánuði sem er eins og einn kaffibolli. 

Takk fyrir hlustunina og stuðninginn!


What is Heimsendir?

Heimsendir eru þættir sem fjalla um Japan, japanska sögu og menningu. Þáttastjórnandinn Stefán Þór býr ásamt fjölskyldu sinni í Japan og segir okkur frá lífinu þar - hvernig það er að vera leikari í Japan, hvaða tækifæri eru að finna og hvaða áskorunum fólk þarf að mæta í landi hinnar rísandi sólar.

Heimsendir byrjaði sem umræðuþáttur um mismunandi sviðsmyndir heimsenda - allt frá gervigreind til uppvakninga, líftækni til heimsstyrjaldar. Nú þegar Stefán Þór er búsettur í Japan er fókusinn færður þangað en inn á milli má finna heimsendatengt efni á borð við uppgang gervigreindar, geópólitík Austur Asíu, Kína, Rússland og fleira.

Upphafs- og endastef: Ísidór Jökull Bjarnason.
Artwork: Sherine Otomo