Heimsendir

Ída Pálsdóttir fluttist til Kyoto með fjölskyldu sinni í byrjun árs 2022. Í þessum þætti ræðum við menningarsjokkið sem fylgdi komunni, kosti og galla þess að búa í Japan, kyrrðina í Kyoto og fleira til. 

Þessi þáttur er í opinni dagskrá en ég minni á Patreon þar sem hlustendur geta fengið aðgang að öllu efni Heimsendis fyrir litlar 700 kr. á mánuði. Takk fyrir að hlusta!

What is Heimsendir?

Heimsendir eru þættir sem fjalla um Japan, japanska sögu og menningu. Þáttastjórnandinn Stefán Þór býr ásamt fjölskyldu sinni í Japan og segir okkur frá lífinu þar - hvernig það er að vera leikari í Japan, hvaða tækifæri eru að finna og hvaða áskorunum fólk þarf að mæta í landi hinnar rísandi sólar.

Heimsendir byrjaði sem umræðuþáttur um mismunandi sviðsmyndir heimsenda - allt frá gervigreind til uppvakninga, líftækni til heimsstyrjaldar. Nú þegar Stefán Þór er búsettur í Japan er fókusinn færður þangað en inn á milli má finna heimsendatengt efni á borð við uppgang gervigreindar, geópólitík Austur Asíu, Kína, Rússland og fleira.

Upphafs- og endastef: Ísidór Jökull Bjarnason.
Artwork: Sherine Otomo