Kristján Örn Elíasson ræddi við Björgvin Víglundsson, fyrrverandi landsliðsmann í skák, og FIDE-meistarann Halldór Grétar Einarsson, formann meistaraflokksráðs Breiðabliks. Að þessu sinni var sjónum beint að opinberum styrkjum til skákhreyfingarinnar og hvernig þeim er varið. Hvar liggja mörkin milli nauðsynlegs stuðnings og óþarfa kostnaðar? Sérstaklega var rætt um áætlaðan 15 milljóna króna kostnað við þátttöku Íslands á Ólympíumótinu í skák í haust. Þar verða tefldar 88 skákir, sem jafngildir rúmlega 170 þúsund krónum á hverja skák. Gestirnir veltu meðal annars fyrir sér hvort hægt væri að fækka keppendum, sleppa varamönnum og draga úr fjölda liðsstjóra og fylgdarfólks. Einnig var rætt um hvaða árangri skákhreyfingin ætti að stefna að og hvernig best væri að forgangsraða takmörkuðu fjármagni. Að lokum bar ýmislegt annað skáktengt á góma í líflegri og gagnrýninni umræðu.
What is Við skákborðið?
Vikulegir þættir um skák á innlendum og erlendum vettvangi í umsjón Kristjáns Arnar Elíassonar alþjóðlegs skákdómara.