Gímaldið

Tölum um bílastæði! Bílastæði hafa verið í brennidepli í kosningabaráttu á höfuðborgarsvæðinu. En hvað eru bílastæði? Hvaða tilgangi þjóna þau í borgarumhverfi og hvaða áhrif hefur það ef við fjölgum þeim stöðugt?
Eyrún Magnúsdóttir ræðir við sérfræðinga um fyrirbærið bílastæði og skoðar hugmyndir annarra borga um bílastæði og tengsl þeirra við skipulag borga en einnig við líðan íbúa og heilsu.
Viðmælendur í þættinum eru Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, aðjúnkt í skipulagsfræði við LBHÍ og fyrrverandi forstjóri Skipulagsstofnunar, og Herdís Sigurgrímsdóttir, stjórnmálafræðingur og ráðgjafi á umhverfis- og skipulagssviði hjá VSÓ ráðgjöf.

Börn og bílastæði eru kosningaþættir Gímaldsins þar sem áhersla er lögð á að greina málefni frekar en að fjölga upphrópunum í umræðunni. Þættirnir eru öllum opnir en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. 

What is Gímaldið?

Hlaðvarpsþjónusta Gímaldsins 🧡