Heimsendir

Er leikhúsið dautt? Af hverju fer ungt fólk ekki oftar í leikhús? Netflix > Leikhús? 
Við, Örn Gauti Jóhannsson leikari, leitum svara við þessum mikilvægu spurningum. Við hvetjum fólk jafnframt til að skella sér í leikhús núna eftir Covid-þurrkinn. 

Ef þig, hlustandi góður, langar að taka þátt í umræðunni hvet ég þig til að ganga til liðs við umræðuhópinn: "Heimsendir" á Facebook. Sjáumst þar!

What is Heimsendir?

Heimsendir eru þættir sem fjalla um Japan, japanska sögu og menningu. Þáttastjórnandinn Stefán Þór býr ásamt fjölskyldu sinni í Japan og segir okkur frá lífinu þar - hvernig það er að vera leikari í Japan, hvaða tækifæri eru að finna og hvaða áskorunum fólk þarf að mæta í landi hinnar rísandi sólar.

Heimsendir byrjaði sem umræðuþáttur um mismunandi sviðsmyndir heimsenda - allt frá gervigreind til uppvakninga, líftækni til heimsstyrjaldar. Nú þegar Stefán Þór er búsettur í Japan er fókusinn færður þangað en inn á milli má finna heimsendatengt efni á borð við uppgang gervigreindar, geópólitík Austur Asíu, Kína, Rússland og fleira.

Upphafs- og endastef: Ísidór Jökull Bjarnason.
Artwork: Sherine Otomo