Helgi Áss Grétarsson stórmeistari í skák og fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík er gestur Kristjáns Arnar Elíassonar í þessum þætti. Helgi varð heimsmeistari í skák í flokki 20 ára og yngri aðeins 17 ára gamall árið 1994. Helgi Áss sagði frá magnaðri sigurgöngu sinni á sterku Czech Open skákmótinu í Pardubice sem lauk í lok júlí og einnig frá öðru móti á Leca Chess Open í Porto í Portúgal sem er nýlokið en þar stóð Helgi sig einnig mjög vel. Glæsileg mótahrina hjá Helga í sumar!
What is Við skákborðið?
Vikulegir þættir um skák á innlendum og erlendum vettvangi í umsjón Kristjáns Arnar Elíassonar alþjóðlegs skákdómara.