Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er gestur Hálftímans, nýs þáttar Gímaldsins um stjórnmál, og ræðir við Aðalheiði Ámundadóttur um pólitískar skoðanir sínar og hvort hún skilgreini sig til vinstri eða hægri; um endurreisn Samfylkingarinnar, hvort flokkurinn hafi færst til hægri og hvort vinstrið sé horfið af Alþingi. Kristrún hefur lengi verið með stöðu jafnaðarmannaflokka á heilanum og telur almenna velferð hafa gleymst í umræðu um réttindi stakra hópa. Samstarfið við Ingu Sæland fyllir hana auðmýkt á hverjum degi. Kristrún ræðir líka EES samninginn og breytingar í alþjóðastjórnmálum.
Meðal umræðuefna:
- Hvernig Samfylkingin fékk sjálfstraustið á ný.
- Af hverju það er feimnismál að vera vinstrimaður á Íslandi.
- Af hverju fólk upplifir sig velkomnara í hægri flokkum en vinstri flokkum.
- Að farið hafi verið of geyst í alþjóðavæðingu.
- Hvaðan fylgi popúlista kemur og hvernig jafnaðarmenn eigi að svara því.
- Viðhorf forsætisráðherra til Flokks fólksins sem hún segir misskilinn.
- Verja þurfi auknum mannauði og fjármagni til að standa vörð um EES-samninginn.
- Gremja í alþjóðasamstarfi fari ekki lengur fram bak við luktar dyr.
- Varnir Íslands séu í öruggum höndum, þrátt fyrir stjórnmál Hvíta hússins.
What is Gímaldið?
Hlaðvarp Gímaldsins 🧡 Gímaldið er fréttatengdur fjölmiðill í áskrift. Við birtum greiningar og fréttaskýringar og gefum út þætti um samfélag, stjórnmál og menningu. Vertu með okkur í að lýsa upp samfélagið. Þú getur gerst áskrifandi hér: https://gimaldid.is/askrift/