Gímaldið

Herdís Sigurgrímsdóttir stjórnmálafræðingur bjó um árabil í Noregi og hefur fylgst grannt með umfjöllun um íslensku þjóðaratkvæðagreiðsluna þar í landi. Sú umræða fer ekki endilega fram á kaffistofum en stjórnkerfið, einkum norska utanríkisráðuneytið, setur sig í stellingar fyrir niðurstöðuna. Eyrún Magnúsdóttir ræðir við Herdísi um stöðuna í norskri pólitík og um það hvort Norðmenn eru eitthvað að pæla í þjóðaratkvæðagreiðslunni á Íslandi og hvaða áhrif hún gæti haft. 

Meðal þess sem rætt er í þættinum:
  • Forsætisráðherra og utanríkisráðherra Noregs vilja ganga í Evrópusambandið, en frumkvæði að samtali um það yrði að koma frá grasrót Verkamannaflokksins
  • Evrópumálin hafa legið í láginni undanfarin ár en merki eru um að aukinn áhugi sé að myndast
  • Tollar á járnblendi hreyfðu við umræðu um stöðu EES-samningsins
  • Segi Íslendingar já í þjóðaratkvæðagreiðslu verður það klárlega innspýting og innblástur fyrir Norðmenn að fara inn í samtalið um framtíð EES og mögulega aðild að ESB
  • Í fyrsta skiptið síðan 1994 eru fleiri kjörnir fulltrúar opnir fyrir aðild og skoðanakannanir sýna breytingu meðal almennings
  • Verkamannaflokkurinn, flokkur forsætisráðherra, er klofinn í afstöðu til aðildar en Høyre, systurflokkur Sjálfstæðisflokksins, er yfirlýstur Evrópuflokkur
  • Noregur situr ekki við borðið þegar stærstu ákvarðanir um varnarmál eru teknar og það ergir stjórnmálamenn sem vilja meira vægi Norðmanna í þeim ákvörðunum, vægi sem ekki fæst með EES
  • Áhrifaleysi EES-samningsins hefur töluvert verið rætt í Noregi og sú staða sem upp gæti komið ef Noregur situr eftir í EES, bara með Lichtenstein – sem er á stærð við Kópavog
Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

What is Gímaldið?

Hlaðvarp Gímaldsins 🧡 Gímaldið er fréttatengdur fjölmiðill í áskrift. Við birtum greiningar og fréttaskýringar og gefum út þætti um samfélag, stjórnmál og menningu. Vertu með okkur í að lýsa upp samfélagið. Þú getur gerst áskrifandi hér: https://gimaldid.is/askrift/