Brodies101

Kristó nýbúinn að tapa fyrir Bjössa í playoffs

Show Notes

Mikil spenna var í loftinu þegar Kristófer Acox og Björn Kristjánsson hittust í stúdíóinu daginn eftir að KR sló Val út úr 8 liða úrslitum. Kristófer er þar af leiðandi kominn í sumarfrí og er ekki mikill vinur Bjössa í KR þessa dagana en Freyr og Axel voru ekki lengi að skipta úr því að vera Valsarar í grjótharða KR-inga, enda þekktir fyrir að vera alvöru bandwagoners.

Strákarnir fóru yfir fréttir vikunnar, Freyr reyndi að fara yfir Nýsköpunarvikuna sem er í gangi en það lenti á daufum eyrum hjá hópnum þar sem hvorki var minnst á körfubolta né næturlíf.

Axel skellti í leik sem hann hafði séð á Tiktok en sitt sýnist hverjum hversu vel hann skilar sér í útvarpsþætti.

What is Brodies101?

Stemningsþátturinn Brodies alla laugardaga á útvarp 101 settur yfir á podcast form.