Við skákborðið

Þeir Gauti Páll og Kristján Örn ræddu málefni líðandi stundar í skákinni bæði innanlands og utan. Það er margt framundan hér á landi, eins og skákmót í Bolungarvík, og á Akureyri, Raufarhöfn og Egilsstöðum, ásamt reglulegu mótahaldi á höfuðborgarsvæðinu. Þá barst talið einnig að landsliðum Íslands, rætt var um Íslendinga að tafli erlendis og góðan árangur Gauta Páls undanfarið í hraðskák, en hann er orðinn á meðal stigahæstu hraðskákmanna landsins. 

What is Við skákborðið?

Vikulegir þættir um skák á innlendum og erlendum vettvangi í umsjón Kristjáns Arnar Elíassonar alþjóðlegs skákdómara.