Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir gera upp þjóðaratkvæðagreiðsluna, aðdraganda hennar og möguleg eftirmál. Þær rýna í hliðstæðurnar við Brexit, baráttuaðferðir fylkinganna, pólitíska ábyrgð í kjölfar niðurstöðunnar og allt sem ekki má gleymast í uppgjöri umræðunnar.
Umræðuefni og spurningar sem varpað er fram í þættinum:
- Á Kristrún að henda inn handklæðinu og skilja stjórnarandstöðuna eftir í súpunni?
- Báðar hreyfingarnar sitja uppi með niðurstöðuna. Hver þarf að axla ábyrgð og á hverju?
- Tilheyrir upplýsingaóreiða einhverju tómarúmi sem enginn ber ábyrgð á?
- Áfram Ísland hafði Brexit-handbókina á náttborðinu, en gleymdi SJÁ að læra af reynslunni?
- Evrópusinnar vanmátu tilfinningarnar og klikkuðu á samtakamættinum.
- Hvað má læra af baráttu Áfram Ísland?
- Hvernig verða herferðirnar gerðar upp og hvað við lærum af því að elta peningana?
- Hvað getum við sótt í smiðju Brexit um uppgjör umræðunnar og þátt fjölmiðla?
- Hvernig mótast viðhorf unga fólksins sem sveiflaðist til og frá í könnunum?
- Hverfa Evrópumálin nú ofan í skúffu eða eru þau komin til að vera?
- Eru ræðuhöld aftur komin í tísku?
What is Gímaldið?
Hlaðvarp Gímaldsins 🧡 Gímaldið er fréttatengdur fjölmiðill í áskrift. Við birtum greiningar og fréttaskýringar og gefum út þætti um samfélag, stjórnmál og menningu. Vertu með okkur í að lýsa upp samfélagið. Þú getur gerst áskrifandi hér: https://gimaldid.is/askrift/