Erla Hlynsdóttir ræðir við Guðrúnu Ágústu í nýjasta þætti af Börn og bílastæði þar sem fjallað er um ábyrgð samfélags, pólitíkina í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga, kaffistofu Samhjálpar og svörin sem EAPN fékk frá framboðunum um áherslur í málefnum fátæks fólks.
Börn og bílastæði er kosningaþáttur Gímaldsins þar sem áhersla er lögð á að greina málefni frekar en að fjölga upphrópunum í umræðunni. Þættirnir eru öllum opnir en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.