Heimsendir

ÞÁTTURINN ER AÐGENGILEGUR Í FULLRI LENGD Á PATREON APPINU. SJÁUMST ÞAR!

Árið 1915 varð lítið þorp í norðurhluta Japans fyrir verstu bjarnarárás í sögu landsins. Í þessum þætti fjalla ég almennt um árásir bjarna í Japan og tek síðan fyrir þessa hryllingssögu frá 1915. Loks eru nokkrir punktar teknir fyrir um lífið í Tokyo. Þar má nefna umfjöllun um leiksýninguna Hroki og Hleypidómar, Mamachari árásir og sand sem gjöf. 

Komið á Patreon! Þar er veisla!

What is Heimsendir?

Heimsendir eru þættir sem fjalla um Japan, japanska sögu og menningu. Þáttastjórnandinn Stefán Þór býr ásamt fjölskyldu sinni í Japan og segir okkur frá lífinu þar - hvernig það er að vera leikari í Japan, hvaða tækifæri eru að finna og hvaða áskorunum fólk þarf að mæta í landi hinnar rísandi sólar.

Heimsendir byrjaði sem umræðuþáttur um mismunandi sviðsmyndir heimsenda - allt frá gervigreind til uppvakninga, líftækni til heimsstyrjaldar. Nú þegar Stefán Þór er búsettur í Japan er fókusinn færður þangað en inn á milli má finna heimsendatengt efni á borð við uppgang gervigreindar, geópólitík Austur Asíu, Kína, Rússland og fleira.

Upphafs- og endastef: Ísidór Jökull Bjarnason.
Artwork: Sherine Otomo