Útvarp Bændablaðið

Í þessum þætti ætlum við að ræða um Sláturfélag Suðurlands sem er samvinnufélag í eigu bænda og hefur þann tilgang samkvæmt samþykktum félagsins að að annast slátrun, úrvinnslu og sölu á framleiðslu félagsmanna. Félagið flytur einnig inn vörur og stundar aðra verslun eftir því sem það styrkir sölu á framleiðslu félagsins. Við ætlum að forvitnast um starfsemi félagsins, eignarhald þess, afkomuna, hvernig hún skilar sér til bænda og ýmislegt fleira.

What is Útvarp Bændablaðið?

Hér ætlum við að halda úti upplýstri og spennandi umræðu um landbúnað. Nýr þáttur aðra hverja viku, þá viku sem Bændablaðið kemur ekki út, þar sem víða verður komið við í spjalli við bændur og sérfræðinga, stjórnmálafólk, neytendur og ýmsa aðra sem hafa innsýn í íslenskan landbúnað.