Heimsendir

Snæfríður Ingvarsdóttir er leikkona og Japansvinur. Við hittumst síðast í Tokyo í byrjun árs 2023 og í þessum þætti spjöllum við um upplifun hennar af Japan, dans- og listforminu Butoh, menningarmun þjóðanna og margt fleira. 

Kæri hlustandi, þessi þáttur er í opinni dagskrá en ég minni á Patreon appið þar sem þú getur nálgast alla þætti Heimsendis í áskrift og þannig stutt við bakið á þessu hlaðvarpi. Arigatou gozaimashita!

What is Heimsendir?

Heimsendir eru þættir sem fjalla um Japan, japanska sögu og menningu. Þáttastjórnandinn Stefán Þór býr ásamt fjölskyldu sinni í Japan og segir okkur frá lífinu þar - hvernig það er að vera leikari í Japan, hvaða tækifæri eru að finna og hvaða áskorunum fólk þarf að mæta í landi hinnar rísandi sólar.

Heimsendir byrjaði sem umræðuþáttur um mismunandi sviðsmyndir heimsenda - allt frá gervigreind til uppvakninga, líftækni til heimsstyrjaldar. Nú þegar Stefán Þór er búsettur í Japan er fókusinn færður þangað en inn á milli má finna heimsendatengt efni á borð við uppgang gervigreindar, geópólitík Austur Asíu, Kína, Rússland og fleira.

Upphafs- og endastef: Ísidór Jökull Bjarnason.
Artwork: Sherine Otomo