Gímaldið

Gímaldið rýnir í nefndarálit meirihluta utanríkismálanefndar um ESB-tillögu ríkisstjórnarinnar. Í álitinu eru sett fram helstu markmið  aðildarviðræðna við ESB, ákveði þjóðin að þær skuli hefja á ný. Í þættinum ræða Aðalheiður Ámundadóttir og Eyrún Magnúsdóttir óvenjuleg einkenni nefndarálitsins og hvernig það bætir upp snubbótta tillögu utanríkisráðherra.
 
Meðal umræðuefna í þættinum: 
  • Dramatískar lýsingar í umsögnum fyrrverandi stjórnmálamanna
  • Áhersla á sérbókun um yfirráð yfir auðlindum
  • Sérlausn um séríslenskt fiskveiðistjórnsvæði
  • Heimskautalandbúnaður og landbúnaðarstyrkir
  • Miklir fjármunir frá Brussel til landsbyggðar
  • Undanþágur um íslenska refinn, hvalinn og flugsamgöngur
  • Ísland áfram herlaust og fullráða í varnarmálum
Ítarlegri umfjöllun er um efni þáttarins á vef Gímaldsins.

Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

What is Gímaldið?

Hlaðvarpsþjónusta Gímaldsins 🧡