Gímaldið

„Leyfi til að gera ljótar byggingar er mikið á Íslandi,“ voru orð sem Borghildur Sölvey Sturludóttir arkitekt lét falla um Græna gímaldið og fóru fyrir mistök út með umsögn um verkefnið. Í viðtali sem birt er í hlaðvarpi Gímaldsins er rætt við Borghildi um tilurð þessara orða og viðbrögð við þeim innan borgarkerfisins en einnig um Græna gímaldið og um þróun í skipulagsmálum.

Í þættinum, sem Gímaldið gefur út, kemur meðal annars fram:
  • Umsögn með orðalaginu átti aldrei að fara í loftið og sú sem skrifaði þessi orð taldi að þeim yrði sleppt
  • Í tölvupósti var sagt að arkitektinn sé „að láta danskan arkitektúr hafa allt of mikil áhrif“ á sig
  • Borghildi hafði verið sagt upp störfum hjá borginni þegar umsögnin var skrifuð og starf hennar lagt niður
  • Unnið er með byggingarheimildir eins og óveiddan kvóta
  • Hröð uppbygging samhliða eftirgjöf í byggingarreglugerð hefur dregið úr gæðum í nýbyggingum
  • Milliliðir milli framkvæmdaaðila og skipulagsyfirvalda hafa bæst við á undanförnum áratug
  • Gera þarf kröfu um að hönnun bygginga liggi fyrir fyrr í ferlinu
  • Hagar hefðu getað sýnt meiri metnað í uppbyggingu á byggingunni sem nefnd hefur verið Græna gímaldið
  • Innanhúss hjá borginni var Græna gímaldið í upphafi kynnt sem „höfuðstöðvar stórfyrirtækis“
Þátturinn er öllum opinn en Gímaldið – sem að hluta til dregur nafn sitt af Græna gímaldinu – er fjölmiðill í áskrift.
Hlustaðu á þáttinn ...og ef þú vilt meira svona efni þá hvetjum við þig til að gerast áskrifandi eða leggja til frjálst framlag á www.gimaldid.is 

What is Gímaldið?

Hlaðvarpsþjónusta Gímaldsins 🧡