Útvarp Bændablaðið

Rætt er um nýja skýrslu um eignarhald á landbúnaðarlandi á Íslandi. Meginefni hennar fjallar um það hvernig tryggja megi sjálfbæra nýtingu landbúnaðarlands, fæðuöryggi og byggð í dreifbýli. Í skýrslunni koma fram forvitnilegar niðurstöður um eignarhald á landbúnaðarlandi en þar segir meðal annars að mikill hluti lögbýla er ekki í virkri landbúnaðarnotkun. Í seinni hluta þáttar snúum við okkur svo að ESB og forvitnumst um það hvað aðild myndi þýða fyrir svínarækt á Íslandi.

What is Útvarp Bændablaðið?

Hér ætlum við að halda úti upplýstri og spennandi umræðu um landbúnað. Nýr þáttur aðra hverja viku, þá viku sem Bændablaðið kemur ekki út, þar sem víða verður komið við í spjalli við bændur og sérfræðinga, stjórnmálafólk, neytendur og ýmsa aðra sem hafa innsýn í íslenskan landbúnað.