Skátakortérið

Við erum mættar aftur og í þetta skiptið ætlum við að gera upp skátasumarið. 

Elín fékk óvenju mikið svigrúm til að tuða í þessum þætti.
Sjöfn fékk óvenju mikið svigrúm til að tala um Strók. Strókur er frábært skátafélag og það er einfaldlega mikilvægt að þjóðin viti það. 💅⚜️ 

Þess á milli náðum við einhvern veginn að komast að þeirri niðurstöðu að það sé galið að skátastarf fari í frí á sumrin. 😂

Grænir Skátar eru aðal styrktaraðilar þáttarins og við erum ekkert eðlilega þakklátar þeim! TAKK!

What is Skátakortérið?

Hlaðvarp um skátastarf í allri sinni mynd. Gleðina, áskoranirnar og það sem situr eftir langt eftir að búið er að taka niður tjöldin. Við segjum sögur, deilum reynslu og ræðum vináttu, gildi og hvað það þýðir að tilheyra stærri heild. Fyrir öll sem vilja skilja hvað skátastarf er í raun og hvers vegna það mótar fólk til framtíðar.