Hægri sveifla fór yfir landið í sveitarstjórnarkosningum. Gímaldið rýnir í niðurstöðurnar með tölfræðingnum Brynjólfi Gauta og stjórnmálaskýrandanum Aðalheiði Ámundadóttur. Í þættinum er meðal annars rætt um þetta:
- Meirihlutar féllu víða um land og hægri sveiflan er staðreynd
- Samfylkingin er næst stærsti flokkurinn í sveitarstjórnum á eftir Sjálfstæðisflokknum
- Sjálfstæðismenn eru í sókn og Píratar horfnir af stjórnmálasviðinu
- Samfylkingin og fleiri borga fyrir mistök í kosningabaráttunni
- Guðlaugur Þór gæti séð sér leik á borði og nýtt niðurstöðuna til að fara í formannsslag
- Miðflokkurinn og Viðreisn festa sig í sessi í flokkakerfinu
- Silja Sóley Birgisdóttir er ný stjarna í stjórnmálum
- Sanna Magdalena kann að hafa komið Vinstri grænum til bjargar í Reykjavík
Umsjón með þættinum hefur Eyrún Magnúsdóttir
Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.
What is Gímaldið?
Hlaðvarpsþjónusta Gímaldsins 🧡