Gímaldið er eins árs. Á þessum tíma hafa komið út 100 hlaðvarpsþættir, mörg hundruð greinar og bókarkaflar, og nú kemur fréttabréf alla virka morgna. Eyrún Magnúsdóttir, Aðalheiður Ámundadóttir, Erla Hlynsdóttir og Helga Arnardóttir líta yfir fyrsta árið og ræða hvaða skref Gímaldið tekur næst.
Í þættinum:
- Erla rifjar upp mál starfsmanns Útlendingastofnunar sem birti trúnaðarupplýsingar um umsækjendur um vernd á Instagram, og fjallar um au pair-kerfið og frumvarp dómsmálaráðherra.
- Helga segir frá umfjöllun sinni um matarverð og verðtryggð lán og hvað er fram undan í neytendamálum, meðal annars samkeppni í eldsneytissölu.
- Aðalheiður ræðir krísu hefðbundinna stjórnmálaflokka á Íslandi og í Evrópu og hvað kom henni mest á óvart á árinu.
- Eyrún ræðir um hægfréttir, mikilvægi áskrifta fyrir fjölmiðla og eitrað samband fjölmiðla og samfélagsmiðla.
What is Gímaldið?
Hlaðvarp Gímaldsins 🧡 Gímaldið er fréttatengdur fjölmiðill í áskrift. Við birtum greiningar og fréttaskýringar og gefum út þætti um samfélag, stjórnmál og menningu. Vertu með okkur í að lýsa upp samfélagið. Þú getur gerst áskrifandi hér: https://gimaldid.is/askrift/