Við skákborðið

Magnús Pálmi Örnólfsson skákmeistari og hagfræðingur MBA var gestur Kristjáns Arnar Elíassonar í skákþætti hans Við skákborðið á Útvarpi Sögu. Þeir félagarnir fóru um víðan völl í spjalli sínu. Nöfn eins og Katrín Jakobsdóttir, Ásgeir Jónsson, Donald Trump, Gunnar Nelson og  Mugison koma við sögu og hugtök eins og vísindi, íþróttir og viðskipti.

Þeir Magnús og Kristján fóru inn á "hættulegar brautir" þegar þeir fóru að ræða ágreiningsmál í hjónaböndum. Hvenær á til dæmis að setja uppþvottavél af stað? Er það þegar hún er hálffull eða full? Magnús hefur mjög sterkar skoðanir á því. Er hægt að semja jafntefli við fjall? Er réttlætanlegt að tefla blindskák í kennslustundum? Á þessu hefur Magnús Pálmi einnig svör á reiðum hödum. 

What is Við skákborðið?

Vikulegir þættir um skák á innlendum og erlendum vettvangi í umsjón Kristjáns Arnar Elíassonar alþjóðlegs skákdómara.