Útvarp Bændablaðið

Stjörnugrís hefur verið í fréttum undanfarna daga eftir að Einar Logi Pétursson birti myndband sem hann tók eftir að hafa farið í óleyfi inn í svínabú fyrirtækisins. Í þættinum ætlum við að ræða það sem myndirnar sýna, aðbúnað dýranna hjá Stjörnugrís og þær stærri spurningar sem málið vekur um dýravelferð og svínakjötsframleiðslu á Íslandi.

What is Útvarp Bændablaðið?

Hér ætlum við að halda úti upplýstri og spennandi umræðu um landbúnað. Nýr þáttur aðra hverja viku, þá viku sem Bændablaðið kemur ekki út, þar sem víða verður komið við í spjalli við bændur og sérfræðinga, stjórnmálafólk, neytendur og ýmsa aðra sem hafa innsýn í íslenskan landbúnað.