Við skákborðið

Sigurbjörn J. Björnsson FIDE-meistari, fyrrverandi skákbókasali og þaulreyndur keppnismaður í skák heimsótti Kristján Örn Elíasson í stúdíóið á Útvarpi Sögu í þátt hans Við skákborðið. Þessi þáttur er sá síðari af tveimur þáttum.  Þeir félagarnir ræddu m.a. um  Íslandsmótið í skák sem er nýlokið en sérstaka úrslitakeppni þriggja efstu manna þurfi til að skera úr um sigurvegara, ferðalag Sigurbjörns til Belgrad í Serbíu þar sem hann var liðsstjóri Íslendinga á sérstöku Ólympíumóti 16 ára og yngri, áhrif skákar á dægurmenningu á Íslandi, EM taflfélaga, einvígi Mikail Tals og Mikhail Botvinnik um heimsmeistaratitilinn í skák og margt annað fróðlegt og skemmtilegt.

What is Við skákborðið?

Vikulegir þættir um skák á innlendum og erlendum vettvangi í umsjón Kristjáns Arnar Elíassonar alþjóðlegs skákdómara.