Við skákborðið

Gestir Kristjáns Arnar í skákþættinum Við skákborðið að þessu sinni voru hjónin Ólafur Ásgrímsson, alþjóðlegur skákdómari og fyrrverandi bankastarfsmaður og Birna Halldórsdóttir umsjónarmaður veitinga hjá Taflfélagi Reykjavíkur og fyrrverandi stuðningsfulltrúi hjá grunnskólum Reykjavíkur. Þau hafa bæði starfað í skákhreyfingunni í tugi ára, eru vinsæl og öllum þykir vænt um þau.

What is Við skákborðið?

Vikulegir þættir um skák á innlendum og erlendum vettvangi í umsjón Kristjáns Arnar Elíassonar alþjóðlegs skákdómara.