Við skákborðið

Gestir skákþáttarins eru þeir Tryggvi Leifur Óttarsson formaður Taflfélags Snæfellsbæjar (og fyrrverandi framkvæmdastjóri Fiskimarkaðar Íslands nú búsettur í Svíþjóð) og Ingvar Þór Jóhannesson og landsliðsþjálfari kvenna í skák. Farið verður yfir fjölmennt og vel skipað minningarmót um Hrafn Jökulsson og Ottó Árnason sem fram fór í Ólafsvík um síðustu helgi. Einnig verður Íslandsmótinu í skák, sem hefst á mánudaginn næstkomandi, gerð góð skil en mótið í ár verður eitt það sterkasta í sögu Íslandsmótanna. Af tólf keppendum eru átta stórmeistarar en þeirra á meðal er Hannes Hlífar Stefánsson sem er þrettánfaldur Íslandsmeistari í skák.

What is Við skákborðið?

Vikulegir þættir um skák á innlendum og erlendum vettvangi í umsjón Kristjáns Arnar Elíassonar alþjóðlegs skákdómara.