Helgi Áss Grétarsson, stórmeistari og nýkrýndur Íslandsmeistari í skák er gestur Kristjáns Arnar í þessum þætti. Íslandsmótinu í skák lauk á laugardaginn þegar lokaumferðin fór fram í Mosfellsbæ. Fyrir lokaumferðina hafði Helgi Áss Grétarsson þegar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn en þá var hann einum og hálfum vinningi á undan næsta manni, Vigni Vatnari Stefánssyni, fráfarandi Íslandsmeistara. Helgi endaði mótið á stuttu jafntefli við Vigni og fór einn keppenda taplaus í gegnum mótið.
Í þættinum ræða þeir Íslandsmótið, andstæðinga Helga í mótinu, stöður sem upp komu eða öllu heldur hvernig Helgi undirbjó sig og nálgaðist einstaka skákir sínar allt eftir hver var andstæðingur hans hverju sinni. Helgi ræddi 5 ára planið sem hann setti sér árið 2018, sagði frá Íslandsmeti sínu í blindskák en árið 1997 tefldi hann blindskákafjöltefli við 11 manns og stendur það met enn. Í lokin talaði Helgi um og lýsti aðdáðun sinni á Indverjanum unga Gukesh Dommaraju sem fyrr í mánuðinum sigraði á áskorendamóti FIDE og vann sér þar með réttinn til að tefla við núverandi heimsmeistara í skák, Kínverjann Ding Liren síðar á árinu.
What is Við skákborðið?
Vikulegir þættir um skák á innlendum og erlendum vettvangi í umsjón Kristjáns Arnar Elíassonar alþjóðlegs skákdómara.