Gímaldið

Síðasti þátturinn í röðinni Börn og bílastæði, kosningaumfjöllun Gímaldsins, er kominn í loftið. Í þættinum ræða Aðalheiður Ámundadóttir og Erla Hlynsdóttir útlitið fyrir Reykjavík og málin sem þær hefðu viljað meiri umræðu um fyrir kosningar. 
  • Töfratalan 12 sem allt snýst um
  • Sviptingar í síðustu könnun fyrir kosningar
  • Meirihlutaþreifingar gætu orðið meira spennandi en kosningarnar
  • Hvernig munu hægri vindar fara með Reykjavík
  • Hvað verður um Borgarlínu
  • Sorphirðan og ítalska mafían
  • Viðkvæmustu hóparnir sem gleymdust
Umsjón þáttar: Erla Hlynsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir

Börn og bílastæði eru kosningaþættir Gímaldsins þar sem áhersla er lögð á að greina málefni frekar en að fjölga upphrópunum í umræðunni. Þættirnir eru öllum opnir en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

What is Gímaldið?

Hlaðvarpsþjónusta Gímaldsins 🧡