Gestir Kristjáns Arnar að þessu sinni í þættinum Við skákborðið voru þeir Gauti Páll Jónsson og Björn Ívar Karlsson. Gauti Páll er ritstjóri
tímaritsins Skákar og varaformaður Taflfélags Reykjavíkur. Björn Ívar er skákkennari, fyrrum landsliðsþjálfari kvenna og með þjálfaragráðu frá Alþjóða skáksambandinu FIDE. Einnig situr Björn í ritnefnd tímaritsins Skákar.
Aðalumræðuefni þáttarins var nýútkomið tölublað tímaritsins Skákar en um er að ræða þriðja blaðið í þeirri útgáfu sem hóf göngu sína árið 2022. Einnig var rætt um Íslandsmót skákfélaga sem hefst á morgun í Rimaskóla en keppt er í fimm deildum og eru keppendur á öllum aldri og allt frá byrjendum til stórmeistara. Í þættinum var víðar skotið niður fæti enda hefur margt verið í gangi hjá íslenskum skákmönnum að undanförnu, bæði hér heima og á erlendri grundu.
What is Við skákborðið?
Vikulegir þættir um skák á innlendum og erlendum vettvangi í umsjón Kristjáns Arnar Elíassonar alþjóðlegs skákdómara.