Kynlífið með Indíönu Rós Kynfræðingi

www.indianaros.is
Indíana Rós er líka á Facebook, Instagram 
Þátturinn er í boði:
ELKO Unaðsvörur - ⁠elko.is/unadsvorur⁠ - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu! 
Durex smokkar - ⁠Artasan.is⁠ - Fæst í öllum helstu verslunum, apótekum og bensínstöðvum

Egill Þór greindist með krabbamein í Júní 2021. Þá áttu hann og Inga María eins og hálfs árs gamlann strák og áttu von á sínu öðru barni. Við tók meðferð og var hann talinn vera laus við krabbamein um mánuði fyrir settan dag hjá stelpunni þeirra - en um viku fyrir fæðingu hennar kom í ljós að krabbameinið var komið til baka. Við tók krefjandi barátta sem tók skiljanlega á alla þætti lífsins og er hann núna laus við krabbameinið þó hann sé enn að glíma við allskonar afleiðingar. Þau komu og ræddu við mig um áhrif krabbameinsins á sambandið og kynlífið á svo einlægan og fallegann máta. Það má greinilega heyra að þetta fallega par hefur lært ýmislegt á þessari reynslu sem hefur styrkt þeirra tengsl.

What is Kynlífið með Indíönu Rós Kynfræðingi?

Indíana Rós kynfræðingur ræðir kynlíf, kynheilbrigði og allt sem tengist því á einn eða annan hátt!