Í þessum þætti koma þeir Ingvar Þór Jóhannesson FIDE meistari og landsliðsþjálfari kvenna í skák og Dagur Ragnarsson nýbakaður Alþjóðlegur meistari. Rætt verður m.a. um síðari hluta Íslandsmóts skákfélaga sem fer fram í höfuðstöðvum Fjölnis í Egilshöll um næstu helgi.
Einnig verður komið inn á stóra "svindlmálið" sem kom upp í fyrra en ríkjandi heimsmeistari Magnus Carlsen sakaði þá Bandaríkjamanninn Hans Niemann um að hafa svindlað gegn sér í afar sterku skákmóti. Þá segir Carlsen að Niemann hafi gjörsamlega pakkað honum saman í skákinni á Sinquefield-mótinu þar sem málið hófst en eins og frægt er hætti Carlsen í fyrsta sinn á ferlinum í skákmóti eftir að hafa tapað skákinni.
What is Við skákborðið?
Vikulegir þættir um skák á innlendum og erlendum vettvangi í umsjón Kristjáns Arnar Elíassonar alþjóðlegs skákdómara.