Heimsendir

Skrímsli, ófreskjur, kynjaverur og fleira. Eru skrímsli til? Ef svo er, hvar halda þau sig? Í þessum þætti ræðum við Helgi Grímur Hermannsson, sviðshöfundur og leikstjóri, allt milli himins og jarðar er viðkemur skrímslum. Við förum einnig út fyrir grunnþemað og ræðum fiskveiðar og lögsögu, goðafræði, kortagerð og plastmengun. 

Kæri hlustandi, endilega taktu þátt í umræðum á Facebook hópnum "Heimsendir" þar sem hægt er að varpa fram pælingum og hugmyndum að umræðuefnum. Einnig vil ég biðja alla þá sem vettlingi geta valdið að segja 1-7 vinum frá Heimsendi, þá stækkar fjölskyldan okkar enn frekar!

What is Heimsendir?

Heimsendir eru þættir sem fjalla um Japan, japanska sögu og menningu. Þáttastjórnandinn Stefán Þór býr ásamt fjölskyldu sinni í Japan og segir okkur frá lífinu þar - hvernig það er að vera leikari í Japan, hvaða tækifæri eru að finna og hvaða áskorunum fólk þarf að mæta í landi hinnar rísandi sólar.

Heimsendir byrjaði sem umræðuþáttur um mismunandi sviðsmyndir heimsenda - allt frá gervigreind til uppvakninga, líftækni til heimsstyrjaldar. Nú þegar Stefán Þór er búsettur í Japan er fókusinn færður þangað en inn á milli má finna heimsendatengt efni á borð við uppgang gervigreindar, geópólitík Austur Asíu, Kína, Rússland og fleira.

Upphafs- og endastef: Ísidór Jökull Bjarnason.
Artwork: Sherine Otomo