Heimsendir

Dauðinn er stórt umræðuefni - hvar á maður að byrja? Jú, með því að finna tvo snillinga sem hafa varið ófáum stundum í vangaveltur um dauðann. Almar Blær Sigurjónsson, leikari, og Annalísa Hermannsdóttir, sviðshöfundur, leikstjóri og tónlistarkona, koma til mín að ræða lífið og dauðann. Við leitumst við að svara spurningum á borð við; Hvað gerist þegar við deyjum? Er eðlilegt að hugsa um dauðann? Hvað eru óvelkomnar hugsanir? Er eilíft líf mögulegt?


What is Heimsendir?

Heimsendir eru þættir sem fjalla um Japan, japanska sögu og menningu. Þáttastjórnandinn Stefán Þór býr ásamt fjölskyldu sinni í Japan og segir okkur frá lífinu þar - hvernig það er að vera leikari í Japan, hvaða tækifæri eru að finna og hvaða áskorunum fólk þarf að mæta í landi hinnar rísandi sólar.

Heimsendir byrjaði sem umræðuþáttur um mismunandi sviðsmyndir heimsenda - allt frá gervigreind til uppvakninga, líftækni til heimsstyrjaldar. Nú þegar Stefán Þór er búsettur í Japan er fókusinn færður þangað en inn á milli má finna heimsendatengt efni á borð við uppgang gervigreindar, geópólitík Austur Asíu, Kína, Rússland og fleira.

Upphafs- og endastef: Ísidór Jökull Bjarnason.
Artwork: Sherine Otomo