Við skákborðið

Gestur Kristjáns Arnar í skákþættinum í dag er Björgvin Víglundsson, byggingaverkfræðingur og fyrrverandi landsliðsmaður í skák. Þeir ræða  alþjóðlega Reykjavíkurskákmótið sem hefst í Hörpunni kl. 15:00 í dag og ýmislegt annað fróðlegt. Metþátttaka er í mótinu að þessu sinni en 422 skákmenn munu sitja að tafli í heila viku en þetta er í fertugasta skipti sem mótið er haldið. Þeir félagar slá á þráðinn til Gauta Páls Jónssonar, ritstjóra tímaritsins Skákar, en hann verður á meðal keppenda í Hörpunni og mætir sterkum tyrkneskum stórmeistara í 1. umferð.

What is Við skákborðið?

Vikulegir þættir um skák á innlendum og erlendum vettvangi í umsjón Kristjáns Arnar Elíassonar alþjóðlegs skákdómara.