Við skákborðið

Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir og Veronika Steinunn Magnúsdóttir, landsliðskonur í skák, segjast afar ánægðar með Reykjavíkurskákmótið sem heppnaðist vel þrátt fyrir að þeim finnist að þeim hefði mátt ganga betur eins og gengur. Stemningin á slíkum mótum sé einstök og gaman að sjá hversu margir sæki mótið aftur ár eftir ár. Þetta var meðal þess sem fram kom í þættinum Við skákborðið en Kristján Örn Elíasson ræddi við þær Hallgerði og Veroniku.

Þær segja ákveðinn kjarna fólks sem telji um 150 til 200 manns mæti á hverju ári á mótið og þær séu farnar að kynnast vel fólkinu innan þess hóps og það sé alltaf jafn gaman að taka þátt. Þá sé ekki síður gaman að taka þátt í þeim viðburðum sem fara fram til hliðar við mótið sjálft eins og pub-quiz, hraðskákmót og þá fari erlendir keppendur oft Gullna hringinn sem þeim finnist afar skemmtilegt. Þær segjast finna vel fyrir því að þátttakan á mótinu hafi aukist verulega undanfarin ár og það sé auðvitað jákvætt en það séu þó orðin svolítil þrengsli á svona fjölmennu Reykjavíkurskákmóti. 

Hallgerður og Veronika ræddu um konur í skák, sögðu skoðun sína á hvort munur væri á styrkleika kvenna og karla við skákborðið, samskipti kynjanna, ferðalög erlendis, Ólympíumót, landsliðsþjálfara, mikla samkeppni stúlkna um sæti í kvennalandsliðinu og margt fleira áhugavert og skemmtilegt.

What is Við skákborðið?

Vikulegir þættir um skák á innlendum og erlendum vettvangi í umsjón Kristjáns Arnar Elíassonar alþjóðlegs skákdómara.