Af hverju gat Jón Gnarr ekki verið áfram í þingflokki Viðreisnar og látið til sín taka sem óbreyttur þingmaður? Og hvað ætlar ríkisstjórnin sér með verðtryggðu lánin? Eyrún Magnúsdóttir, Helga Arnardóttir og Aðalheiður Ámundadóttir ræða um Viðreisn og verðtrygginguna.
Meðal efnis í þættinum:
- Jón Gnarr yfirgefur þingflokk Viðreisnar en ekki flokkinn. Er staða hans sambærileg við stöðu Dags B. Eggertssonar innan Samfylkingarinnar? Rýnt í hvernig þeir hafa spilað ólíkt úr sinni stöðu.
- Áform um að stytta hámarkslánstíma verðtryggðra fasteignalána í 25 ár eru komin í samráðsgátt.
- Bankastjórar þriggja stærstu bankanna vilja afnema verðtrygginguna. Af hverju gengur ríkisstjórnin ekki lengra?
- Hvaða áhrif hefur styttri lánstími á tekjulága fyrstu kaupendur?
- Lífeyrissjóður varar við: verðtryggð lán geti verið skynsamleg í hávaxtaumhverfi.
- Af hverju megum við ekki bera okkur saman við Færeyinga? Þar bjóðast 30 ára lán á 4,8% föstum vöxtum.
- Matarverð: Hagar hækka afkomuspá um 800 milljónir á sama tíma og verslanir frysta verð.
- Hvernig hefur þingmönnum farnast sem yfirgefa þingflokka sína á miðju kjörtímabili?
- Forystuleysi, veikindaleyfi og þingflokkur án formanns: hvað er að gerast innan Viðreisnar?
What is Gímaldið?
Hlaðvarp Gímaldsins 🧡 Gímaldið er fréttatengdur fjölmiðill í áskrift. Við birtum greiningar og fréttaskýringar og gefum út þætti um samfélag, stjórnmál og menningu. Vertu með okkur í að lýsa upp samfélagið. Þú getur gerst áskrifandi hér: https://gimaldid.is/askrift/