Við skákborðið

Gestur Kristjáns Arnar Elíassonar í þættinum að þessu sinni er skákmeistarinn, heimspekingurinn og félagsfræðingurinn Þorvaldur Logason en hann er höfundur hinnar umdeildu bókar Eimreiðarelítan - Spillingarsaga sem kom út í lok síðasta árs. Megin þema eða inntak þáttarins er spilling og svindl í skák, þ.e. misnotkun valds. Í þættinum skilgreinir Þorvaldur þessi  hugtök, hann kemur inn á elítur og valdaelítur, beitingu valdsins, s.s.  úthlutun embætta, segir skemmtilegar sögur af fyrrum heimsmeisturum og forsetum FIDE. Margt annað athyglisvert barst í tal sem hlusta má á í spilara þáttarins.

What is Við skákborðið?

Vikulegir þættir um skák á innlendum og erlendum vettvangi í umsjón Kristjáns Arnar Elíassonar alþjóðlegs skákdómara.