Sigurbjörn J. Björnsson var gestur þáttarins að þessu sinni. Þátturinn er seinni þáttur í umfjöllun um Kasparov með áherslu á einvígin hans við Karpov en þeir tefldu 5 einvígi um heimsmeistaratitilinn í skák á árunum 1984-1990. Sigurbjörn fór yfir einvígi númer þrjú, fjögur og fimm í þættinum. Einnig var komið inn á vináttu Karpovs og Kasparovs, seinni einvígi Kasparovs gegn þeim Short, Anand og Kramnik, tveggja einvígja við Deep Blue, aðskilnaðinn við FIDE, andstöðu Kasparovs við Pútin í gegnum árin og margt fleira.
What is Við skákborðið?
Vikulegir þættir um skák á innlendum og erlendum vettvangi í umsjón Kristjáns Arnar Elíassonar alþjóðlegs skákdómara.